Mærudagar, bæjar- og fjölskylduhátíð Húsvíkinga, fara fram dagana 24. og 25. júlí en jafnframt verða ýmsir smærri viðburðir yfir alla vikuna. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá um allan bæ, meðal annars skrúðgöngu, barnaskemmtun, tónleika, tívolí, götubitastemningu, íþróttir, listsýningar og hið árlega Mæruhlaup.
Dagskrá Mærudaga 2026








