Yfirlýsing frá Leikfélagi Húsavíkur: Samkomuhúsið, staða þess og framtíð.

Upplýsingafundur Leikfélags Húsavíkur með kjörnum fulltrúum þann 4. nóvember síðastliðinn um stöðu samkomuhússins var góður og gagnlegur. Félagar skiptust á skoðunum og ræddu málin.
LH fór þess á leit við Norðurþing nú í haust að gerð yrði áætlun um endurbætur og viðgerð á samkomuhúsinu. Í kjölfarið fengum við fund með skipulags- og framkvæmdaráði og áttum gott spjall. Í framhaldi af því fundust skýrslur um tvær úttektir sem hafa verið gerðar á húsinu, sú fyrri árið 1983 og seinni árið 2015. Báðar lýsa þær húsi í bráðri þörf fyrir viðgerðir, endurbætur og reglulegt viðhald til að lengja megi líftíma þess fyrir þá starfsemi sem er þar.

Beiðnin um úttekt 2015 var gerð með áherslu á burð hússins vegna orðróms um slakt ástand. Kröfur í byggingariðnaði fyrir 100 árum voru ólíkar kröfum í dag og stenst samkomuhúsið afar illa þann samanburð. Óstaðfest en líklegt er að útveggir séu ekki járnbentir og steypan sjálf ekki af nútímagæðum, sem er helsta ástæða þess að ekki þykir vert að fara í endurbætur á húsinu.

Í skýrslunni frá úttektinni 2015 er einnig lögð mikil áhersla á öryggi í rafmagnsmálum, eldvarnir og flóttaleiðir. Ráðist var í úrbætur árið 2022, þegar Norðurþing lét gera nauðsynlegar lagfæringar á rafmagni og endurnýjaði rafmagnstöflur. Einnig var eldvarnarkerfi lagt í húsið og nú síðast, fyrir réttu ári, var settur upp nýr flóttastigi úr sal á efri hæð. Áður var búið að koma kyndikerfi hússins af stað. Þessar aðgerðir hafa aukið öryggi og aðbúnað einstaklinga sem nota húsið en laga ekki aðalvandann sem er burðarþol byggingarinnar. Samhliða þessum endurbótum hefur á síðustu árum farið fram löngu tímabær tiltekt í húsinu. Hún hefur bætt öryggi og vinnuaðstöðu okkar sem vinnum í húsinu og bætt upplifun gesta.

Þrátt fyrir þessar úrbætur er húsheilsa samkomuhússins ekki góð. Vanræksla á ytra byrði hefur leitt til viðvarandi rakavandamála og fólk upplifir óþægindi vegna lélegra loftgæða og annarra fylgikvilla sem því fylgja. Úrbæturnar sem hafa verið gerðar leysa því miður ekki þann vanda sem rakinn hefur skapað en við gerum það jafnóðum sem við getum til að gera dvöl í húsinu sem bærilegasta fyrir alla.
Nú liggur opinberlega fyrir að staðan kallar á nýja lausn. Við bindum vonir við að undirbúningsvinna eins og að kanna þarfir samfélagsins og huga að þáttum eins og hvernig og hvar, muni hefjast á næsta ári. Úrræði sem mun leysa gamla samkomuhúsið af hólmi fær svo vonandi pláss í áætlunargerð Norðurþings haustið 2027 til næstu ára. Markmiðið er nýtt viðburðahús sem býður upp á aðstöðu og aðgengi sem sómi verður að. Það er trú okkar í Leikfélagi Húsavíkur að með samtali, samvinnu, gagnkvæmri virðingu og samhentu átaki allra aðila, takist okkur sem samfélagi að komast að góðri niðurstöðu og reisa vel búið viðburðahúsnæði á Húsavík innan 10 ára.

Allt fólk sem starfar með LH gerir það af fúsum og frjálsum vilja og á sína eigin ábyrgð hér eftir sem hingað til. Það sama á við um gesti okkar. Eini munurinn á starfseminni nú er sá að búið er að viðurkenna stöðuna á húsinu og taka yfirlýsta ákvörðun um að ekki eigi að laga burðarvirki þess. Við í LH vorum í þeirri trú að húsið yrði lagað og öll okkar innri vinna miðaði að því. Við höfum því haft stuttan tíma til þess að kúpla úr þeirri hugsun og ákveða hvort við viljum nota húsið eins og það er.
Niðurstaða okkar er sú að við ætlum að nota samkomuhúsið í vetur og Kardemommubærinn fer á svið eftir áramót. Við höfum ráðið Jennýju Láru Arnórsdóttur til okkar sem leikstjóra og vonum innilega að sem flest sjái sér fært að vera með okkur í starfinu og heimsæki okkur í Kardemommubæ í vetur.
Sú ákvörðun að nota samkomuhúsið áfram getur breyst þyki okkur ástæða til að endurmeta afstöðu og notkun á húsinu. Við munum endurskoða afstöðu okkar árlega, og/eða ef miklar jarðhræringar verða á okkar svæði.

Sjáumst í Gamla samkomuhúsinu.
Stjórn Leikfélags Húsavíkur