Húsvíkingurinn Freyr Friðfinnsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Samtökum iðnaðarins sem viðskiptastjóri fyrir tækni- og hugverkaiðnað og hefur þegar hafið störf.
Freyr er uppalinn á Húsavík, sonur hjónanna Friðfinns Hermannssonar og Berglindar Svavarsdóttur. Í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins segir að Freyr hafi víðtæka reynslu af nýsköpun og uppbyggingu sprotaumhverfisins hér á landi. Hann starfaði hjá KLAK frá árinu 2019, þar sem hann sinnti alþjóðlegum verkefnum og leiddi meðal annars uppbyggingu og framkvæmd verkefnisins DAFNA fyrir Tækniþróunarsjóð.
Þar að auki stýrði hann hröðlum og hugmyndasamkeppnum og kom að uppbyggingu stærsta mentorsamfélags landsins, KLAK VMS. Í tilkynningu segir að reynsla hans spanni meðal annars tengslamyndun, ráðgjöf og stuðning við fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði.
Freyr er með meistaragráðu í frumkvöðlafræði og stjórnun nýsköpunar frá KTH í Stokkhólmi og BS-gráðu í hugbúnaðarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Freyr hefur verið virkur í viðburðum tengdum frumkvöðlastarfi á Húsavík frá því að Stéttin opnaði og er varamaður í stjórn Þekkingarnets Þingeyinga.

