Hver er með flottustu Þingeysku mottuna?

Í dag er síðasti dagur marsmánaðar og því leitar Húsavík.com að flottustu mottum mánaðarins. Mottumars er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Hægt er að styrkja starf Krabbameinsfélagsins hér: www.krabb.is/mottumars

Við biðjum ykkur að senda tilnefningar ásamt mynd á netfangið frettir@husavik.com en tilnefningar standa til klukkan 14:00 í dag, 31. mars. Hægt verður að kjósa um bestu mottuna hér á vefnum frá klukkan 16:00 í dag.