Fimm af sex oddvitum framboða í Norðurþingi höfðu mætt á kjörstað þegar Eurovision keppnin byrjaði klukkan sjö, en einn oddviti, Kjartan Páll hjá Samfylkingunni átti enn eftir að fara á kjörstað. „Þeir síðustu verða fyrstir,“ sagði Kjartan þegar Húsavík.com ræddi við hann nú á áttunda tímanum. Kjörstaðir eru opnir til klukkan 10 í kvöld, en von er á fyrstu tölum um klukkan 11 og verða þeim gerð góð skil hér á vefnum, þar sem fylgst verður með kosningunum fram eftir nóttu.
Fimm oddvitar búnir að kjósa: „Þeir síðustu verða fyrstir,“ segir Kjartan Páll
