Þegar ég settist niður til að skrifa stutta grein um landbúnað og dreifbýlið okkar í Norðurþingi, þurfti ég að standa upp aftur og jafna mig þegar ég gat ekki talið saman nema um 30 bú í þessu víðfeðma sveitarfélagi, þar af nautgripir á þremur og einungis mjólkað á tveimur búum.
Til samanburðar má hafa í huga að einungis í Kelduhverfi voru um það bil 35 bú um1960 og sennilega mjólkað á flestum þeirra. Þetta sýnir hverslags hamfarabreytingar hafa orðið í sveitum og byggðum landsins. Það er nú þannig að landbúnaður gefur af sér mörg afleidd störf og verðmætin sem þessi bú skapa er talið í hundruðum milljóna og einn stærsti vinnustaður á Húsavík sinnir úrvinnslu landbúnaðarafurða.
Það er ekkert sveitarfélag sem getur snúið þessari þróun við enda kannski ekki það sem við viljum með nútímatækni í landbúnaði en áskorunin er að bregðast við breyttu samfélagi í sveitum og þorpum. Það getum við gert með því að tala máli landbúnaðar og dreifbýlis, þá er gott að hafa í huga að það er fleira landbúnaður en kjöt og mjólk. Við þurfum að vera opin fyrir nýjum möguleikum eins og ferðaþjónustu, kornrækt, útiræktun hverskonar og þess sem landið býður upp á víðum skilningi.
Það sem sveitarfélagið getur gert, er til dæmis að standa vörð um að þjónustan sé síst minni í hinum dreifðu byggðum, sérstaklega fyrir ungt fólk og barnafólk með því t.d. að passa upp á að bjóða leikskólabörnum upp á ferðir með skólabíl eins og er í stefnuskrá B-listans. Þá þarf að sinna æskulýðs-og íþróttamálum eins og nýlegir samningar við Íþróttafélagið Þingeying eru gott dæmi um. Einnig þarf að gæta þess að hlúa vel að eldri borgurum og félagslegri stöðu þeirra.
Þetta sýnir okkur hversu gríðarlega mikilvægt það er að standa vörð um hvert einasta starf sem fyrir er í sveitarfélaginu og ekki gleyma þeim í baráttunni fyrir nýjum störfum.
Það var ljóst þegar ég gaf kost á mér í 3.sæti á lista Framsóknar til sveitarstjórnarkosninga að ég yrði ekki virkur í kosningabaráttu síðustu tvær vikur fyrir kosningar en ég mun halda þrumandi framboðsræður í fjárhúsunum á Hóli og á þar 1400 trygg atkvæði. Vonast til að sami árangur náist í kosningunum 16.maí með því að setja X við B.
BBBBBBBBaráttukveðjur,
Rúnar á Hóli

