„Horfum bjartsýn fram á veginn þótt vissulega hafi gefið á bátinn“

Í samtali við Húsavík.com fyrr í vikunni sagðist Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, hafa væntingar um að hægt sé að fá aðra aðila að verslunarrekstri í miðbæ Húsavíkur.

Við ræddum við Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, sem segir lokunina vissulega vonbrigði en vonast til þess að nýir aðilar sjái tækifæri í húsnæðinu og fyrirhugaðri uppbyggingu í bænum.

Vont þegar mikilvæg starfsemi og störf hverfa

„Við horfum bjartsýn fram á veginn þótt vissulega hafi gefið á bátinn í ýmsu í atvinnulífinu undanfarin misseri. Við hefðum auðvitað viljað sjá Krambúðina þjóna samfélaginu áfram. Það er alltaf vont þegar starfsemi sem er mikilvæg fyrir íbúa og gesti leggst af og störf hverfa,“ segir Helena.

Hún bendir á að dæmi séu um að ný starfsemi hafi sprottið upp þegar þjónusta hefur horfið úr bænum og má þar til dæmis nefna stofnun Heimamanna þegar Húsasmiðjan lokaði verslun sinni.

„Við vorum án bakarís í þónokkurn tíma en framtaksamt fólk sá tækifæri í að opna nýtt bakarí sem hefur verið vel tekið. Vonandi fer eins þarna, að einhver sjái tækifæri í rýminu sem losnar þegar Krambúðin lokar og þar verði matvöruverslun rekin áfram með einhverjum hætti.“

Helena segir jafnframt að þrátt fyrir áföll í atvinnulífinu séu nokkur stór verkefni í þróun í sveitarfélaginu, einkum á Bakka.

„Það er margt spennandi í farvatninu, einkum á Bakka. Við erum að vinna þétt með fyrirtækjum sem vilja staðsetja sig þar, eins og Bakkvík landeldi, Eyrie DC og Heidelberg, sem kynntu áform sín á Hönnunarþingi nýliðna helgi. Allt eru þetta stór verkefni með fjölmörg störf, bæði bein og afleidd,“ segir Helena Eydís Ingólfsdóttir.

Samkaup segja reksturinn hafa orðinn sífellt erfiðari

Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Krambúðanna, segir í samtali við Húsavík.com að rekstur verslunarinnar hafi orðið sífellt krefjandi, meðal annars vegna langs opnunartíma og mikils kostnaðar.
„Þetta hefur orðið meira og meira krefjandi, að reka svona verslun með löngum opnunartíma og háu vöruverði,“ segir Svanur.

Húsaleigusamningur verslunarinnar rennur út eftir janúar og segir Svanur að Samkaup hafi að undanförnu verið að loka þeim rekstrareiningum sem ekki standi undir sér.

„Við höfum verið að loka óarðbærum einingum og það hefði ekki verið forsvaranlegt að halda þessu áfram. Við töldum erfitt að standa við skuldbindinguna til næstu 5 til 10 ára“ segir hann.

Hann bendir jafnframt á að Samkaup reki aðra matvöruverslun á Húsavík, Nettó, og að lokun Krambúðarinnar geti skapað svigrúm til breytinga þar.

„Það skapast svigrúm fyrir Nettó til að hafa opið lengur, fram yfir kvöldmat, og ég held að menn séu að íhuga það,“ segir Svanur.

Hann segir ákvörðunina hafa verið tekna að vel athuguðu máli. „Þetta er ekki ákvörðun sem er tekin af neinni léttúð. Það er búið að liggja yfir þessu og það er alltaf erfitt að segja upp fólki, en þetta var ákvörðun sem við töldum að væri óumflýjanleg,“ segir Svanur Valgeirsson.