Stefán Jón frumsýnir tvær heimildamyndir um merkileg söfn í Fjalakettinum

Tvær nýjar heimildamyndir um sérstæð söfn og fólkið að baki þeim verða sýndar í kvikmyndaklúbbnum Fjalakettinum í Eurovision-safninu á Húsavík, miðvikudagskvöldið 10. september. Myndirnar fjalla annars vegar um Minjasafnið á Mánárbakka og hins vegar Safnasafnið á Svalbarðseyri. Dagskráin hefst klukkan 20 og er aðgangur ókeypis.

Fyrri mynd kvöldsins fjallar um Aðalgeir Kristjánsson og hið sérstæða safn sem hann hefur byggt upp á Mánárbakka á Tjörnesi um áratugaskeið. Myndin verður forsýnd í félagsheimili Tjörnesinga fyrr um daginn, þegar Aðalgeir fagnar 90 ára afmæli sínu, en opinber frumsýning verður síðan í Fjalakettinum um kvöldið.

Í myndinni er gengið um gamla gula húsið Þórshamar og torfbæinn í túninu, þar sem Aðalgeir segir frá fjölbreyttum safngripum. Þeir spanna allt frá fyrsta eldspýtustokknum sem hann eignaðist til sjaldgæfra konungsgripa og gamalla handrita. Aðalgeir er ekki síður kunnur sem sagnamaður en safnari, auk þess sem hann sinnti veðurathugunum á Tjörnesi í 60 ár.

„Hérna týnist ekki tíminn, hann er vandlega varðveittur af einlægum áhuga,“ segir Stefán Jón Hafstein, höfundur myndarinnar. Heimildamyndin er 35 mínútur að lengd og er bæði saga um einstakt og persónulegt safn og óður til manns sem hefur bjargað mikilvægri menningararfleifð fyrir komandi kynslóðir.

Seinni mynd kvöldsins fjallar um Safnasafnið á Svalbarðseyri, höfuðsetur alþýðulistar á Íslandi, sem fagnar 30 ára afmæli á þessu ári.

Stefán Jón mun svara spurningum áhorfenda að sýningum loknum. Nánar er fjallað um sýningarnar á kvikmyndavefnum Fjalakötturinn.is