Eik hefur verið týnd síðan slysið varð í gær: Skipulögð leit í dag

Skipulögð leit verður gerð á Húsavík í dag að husky-tíkinni Eik, sem hefur verið týnd frá því síðdegis í gær og er mögulega slösuð eftir árekstur.

„Eik er búin að vera týnd síðan árekstur varð klukkan 17:23 í gær. Hún þekkir ekki umferð og hljóp á bíl sem var að aka niður Þverholtið,“ segir Guðný María Waage, dýraeftirlitsmaður Norðurþings, í samtali við Húsavík.com í morgun.

Leitin hefst klukkan 13:00 í dag, sunnudaginn 18. október, og verður mæting á bílaplaninu við Pósthúsið á Húsavík. Þar verða veittar upplýsingar um skipulag leitarinnar og leitarsvæði. Allir sem vilja leggja hönd á plóg eru hvattir til að mæta.

Eik er husky-tík, ættuð frá Snowdog. Fólk er sérstaklega beðið um að elta hana ekki ef hún sést, heldur hafa þegar samband við Dýraeftirlit Norðurþings í síma 865 3398.

Vonast er til að sem flestir geti tekið þátt í leitinni og hjálpað til við að koma Eik heilli heim