Sigurjón og Hjálmar deila um menntamál: „Ljóst að hann hefur ekki lesið eina einustu grein eftir mig“

Það hefur heldur betur hitnað í kolunum í umræðunni um menntamál á Húsavík.com í dag. Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri við Borgarhólsskóla og fyrrum varaþingmaður og forseti sveitarstjórnar Norðurþings, og Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins hér í kjördæminu, hafa skipst á greinum um fyrirhugaðar breytingar á námsmati grunnskóla. Báðir vilja þeir bæta íslenskt menntakerfi, en virðast ekki alveg sammála um hvað hinn er að segja.

Upphafið má rekja til greinar sem Hjálmar Bogi skrifaði ásamt nokkrum öðrum skólamönnum og birtist á Húsavík.com og Vísi í morgun undir fyrisögninni „Náms­mat, aðal­nám­skrá og fag­leg á­byrgð skólastjóra“. Þar eru fyrirhugaðar breytingar á námsmati gagnrýndar, einkum sá skammi tími sem skólum er ætlaður til innleiðingar. Höfundarnir telja að vanda þurfi betur til verka og fagna því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi tekið málið til athugunar.

Ekki leið á löngu þar til Sigurjón Þórðarson greip til pennans og birti greinina „Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum“. Þar rifjar hann upp að Hjálmar Bogi hafi sjálfur talað fyrir ýmsum umbótum í menntamálum og telur undarlegt að hann gagnrýni nú ráðherra sem sé að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd.

Sigurjón segir Hjálmar skrifa „hverja beiskjublandna greinina á fætur annarri“ og gera aukaatriði í útfærslu mála að aðalatriðum. Hann gengur svo langt að velta því upp hvort skólastjórnandinn hafi í raun mikinn vilja til umbóta.

Hjálmar Bogi var ekki lengi að svara og birti greinina „Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu“.

Þar bendir Hjálmar á að stuðningur við umbætur þýði ekki að menn þurfi að samþykkja allar ákvarðanir ráðherra.

Hjálmar segir þingmanninn rugla saman breytingum á einkunnakvarða og raunverulegum umbótum á námsmati og spyr meðal annars hvernig það eigi að bæta lesskilning barna að skipta bókstöfum út fyrir tölustafi.

Í samtali við Húsavík.com var Hjálmar Bogi stuttorður um ritdeiluna: „Það er nokkuð ljóst að Sigurjón hefur ekki lesið eina einustu grein eftir mig.“