Guðni tekur lestina í Póllandi

Pólski þingmaðurinn Ryszard Świlski deilir á Facebook þremur myndum af Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands þar sem hann er á ferð í lest til borgarinnar Gdańsk til fundar við Aleksandra Dulkiewicz borgarstjóra Gdańsk á miðvikudag. Eins og landsmenn vita er Guðni mjög alþýðulegur en þetta kann að koma fólki …

Hvalaskoðunarfyrirtæki á Húsavík taka höndum saman

Ferðaþjónustufyrirtæki á Húsavík hafa tekið höndum saman um markaðssetningu á staðnum sem höfuðstaðs hvalaskoðunar á Íslandi. Búið hefur verið til nýtt vörumerki og á næstu vikum verður átakinu fylgt eftir með kynningarefni. Hvalaskoðunarfyrirtækin þrjú hafa verið í mikilli samkeppni undanfarin ár en telja forsvarsmenn þeirra að samstaða og samvinna …

Portrait Örlygs Hnefils af Thor Vilhjálmssyni sýnt í Frederiksborgarsafni

Húsvíkingurinn Örlygur Hnefill Örlygsson er snjall áhugaljósmyndari eins og ýmsum mun kunnugt og hefur meðal annars átt ljósmyndir á sýningum. Hann tók nýverið þátt í samnorrænni portrettmyndasamkeppni þar sem heimilt var að senda inn ljósmyndir, teikningar, málverk og skúlptúra. Alls bárust um 1.300 verk og meðal þeirra var ljósmynd …