Vinna við umfangsmiklar endurbætur á Garðari, syðri hluta Kaupfélagshússins á Húsavík, gengur í aðalatriðum samkvæmt áætlun. Búið er að hreinsa innan úr kjallara og jarðhæð hússins og meðal annars fjarlægja gólf og loft þar á milli.
Nokkur vinna er enn eftir í kjallaranum áður en hægt verður að hefjast handa við að byggja upp nýtt gólf, en jafnframt stendur yfir vinna við að hreinsa innan úr annarri hæð. Þá hefur verið tekinn grunnur fyrir nýja viðbyggingu sem verður með kjallara og einni hæð.
Um er að ræða viðamikið verkefni á vegum fasteignafélagsins Gb5 ehf., eiganda Kaupfélagshússins. Markmiðið er að endurnýja húsið og færa það til nútímans, en halda jafnframt í sögu þess og ásýnd. Meðal breytinga verður að gólf jarðhæðar verður ekki lengur á stöllum heldur í sömu hæð og anddyri hússins.
Þegar framkvæmdum lýkur mun útibú Íslandsbanka á Húsavík flytja á jarðhæð Garðars. Gb5 ehf. rekur Kaupfélagshúsið sem miðstöð þekkingar, þjónustu, verslunar og mannlífs á Húsavík.
Myndir: Gb5 ehf.





