Arngrímur Arnarson hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður og safnstjóri Hvalasafnsins á Húsavík og tekur við starfinu af Evu Björk Káradóttur þann 1. apríl næstkomandi. Arngrímur er fæddur árið 1978 og hefur fjölbreytta reynslu tengda hvalamenningu, en hann hefur starfað hjá Norðursiglingu frá lokum árs 2016 eða í tæpan áratug.
„Ég er mjög spenntur að koma inn í Hvalasafnið og halda áfram þeirri frábæru uppbyggingu sem þar hefur átt sér stað síðustu ár,“ segir Arngrímur í samtali við Húsavík.com. Hann segir sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að halda áfram störfum innan samfélags ferðaþjónustu og hvalamenningar á Húsavík.
„Ég þekki Hvalasafnið vel, bæði úr störfum mínum hjá Norðursiglingu síðustu tíu ár, en einnig vann ég á sínum tíma með fyrrum safnstjórum að ýmsum kynningarmálum fyrir safnið. Ég hef því fylgst með þróun þess af mikilli aðdáun allt frá upphafi. Hvalasafnið er lykilsafn í ferðaþjónustu á Norðurlandi og heiður að fá að stýra því inn í komandi tíma,“ segir Arngrímur að lokum.

