Akureyringurinn Sonja Lí mætt á Ólympíuleikana

Akureyringurinn Sonja Lí Kristinsdóttir er óvænt komin með þátttökurétt á Vetrarólympíuleikunum sem fara nú fram í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Sonja mun keppa í stórsvigi og svigi á næstu dögum og verður því fimmti keppandi Íslands á leikunum, en við fengum aukasæti í alpagreinum kvenna og var Sonja því kölluð inn.

Sonja er ríkjandi Íslandsmeistari í svigi og keppir með Skíðafélagi Akureyrar.

Hún keppir í stórsvigi sunnudaginn 15. febrúar og svigi 18. febrúar, eins og Elín Elmarsdóttir Van Pelt.