Fabvarpið fer í loftið á Útvarp Húsavík

Fab Lab Húsavík er að hefja spennandi nýja vegferð með vikulegum hlaðvarpsþáttum, Fabvarpið, þar sem kastljósinu er beint að tækni, sköpun og tæknimöguleikum Fab Lab-smiðjunnar á Húsavík. Þættirnir verða sendir út vikulega á Útvarp Húsavík en nú er unnið að því að koma upp FM sendum stöðvarinnar. Þættirnir verða jafnframt aðgengilegir hér á vefnum Húsavík.com og á Spotify.

Þáttunum stýra Stefán Pétur og Flexi, sem munu ræða um tækni og tæknimöguleika innan smiðjunnar á Húsavík, sem og almennt um Fab Lab-smiðjur og hlutverk þeirra í nýsköpun og skapandi starfi. Auk þess verður fjallað um það helsta sem er að gerast í heimi tækni, bæði hérlendis og erlendis.

Sérstök áhersla verður lögð á tækjakost Fab Lab Húsavíkur, notkunarmöguleika hans og hvernig tækin nýtast einstaklingum, fyrirtækjum, nemendum og frumkvöðlum í skapandi verkefnum. Markmiðið er að fræða, veita innblástur og opna augu hlustenda fyrir þeim fjölbreyttu möguleikum sem tæknin og Fab Lab-smiðjan hafa upp á að bjóða.

Hægt er að hlusta á fyrsta þáttinn hér: