Fjögur prósent hækkun á ferðum um Vaðlaheiðargöng tekur gildi í mars

Stjórn Vaðlaheiðarganga samþykkti í vikunni breytingar á verðskrá ganganna sem taka gildi frá 2. mars 2026. Verð á stökum ferðum, sem og á 10 og 50 skipta kortum, hækka um 4 prósent. Verð á mánaðar- og árskortum helst hins vegar óbreytt. Síðast var verðskrá ganganna hækkuð 2. janúar 2025.

Stök ferð fyrir fólksbíl hækkar úr 2.131 krónu í 2.216 krónur. Verð á 50 ferða korti hækkar úr 47.700 krónum í 49.608 krónur. Árgjald verður áfram 265.000 krónur samkvæmt nýrri gjaldskrá.

Gjaldskrá 2025 2026 % breyting
Fólksbílar undir 3,5 tonnum
Stök ferð 2.131 kr. 2.216 kr. +4,0%
Greitt í heimabanka 3.600 kr. 2.216 kr. -38,4%
10 ferðir 15.370 kr. 15.985 kr. +4,0%
50 ferðir 47.700 kr. 49.608 kr. +4,0%
Mánaðargjald 26.500 kr. 26.500 kr. 0,0%
Árgjald 265.000 kr. 265.000 kr. 0,0%
Ökutæki 3,5–7,5 tonn
Stök ferð 2.968 kr. 3.087 kr. +4,0%
Greitt í heimabanka 4.458 kr. 3.087 kr. -30,8%
Ökutæki yfir 7,5 tonn
Stök ferð 6.255 kr. 6.505 kr. +4,0%
Greitt í heimabanka 7.745 kr. 6.505 kr. -16,0%
Annað
Innheimtugjald eftir 24 klst. 1.490 kr. 0 kr. -100,0%