Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings tilkynnti á fundi framsóknarfélaganna rétt í þessu að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri í kosningum til sveitarstjórnar í vor. Í kjölfar ræðu hans óskaði fjöldi fundarmanna eftir orðinu til að þakka Hjálmari og skora á hann að endurskoða ákvörðun sína.
Hjálmar hefur komið að sveitarstjórnarmálum allt frá því Norðurþing varð til árið 2006. Hann sat í fyrsta sinn á framboðslista það ár og í kjölfarið hóf hann þátttöku sína í stjórnmálum sem stjórnarmaður í Hvammi. Hjálmar var fyrst kjörinn í sveitarstjórn árið 2010, þá 30 ára gamall.
Árið 2018 leiddi Hjálmar Bogi lista Framsóknar í fyrsta sinn og hlaut flokkurinn þá þrjá kjörna fulltrúa og bætti við sig fulltrúa. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 var Hjálmar aftur oddviti og vann þá stórsigur; Framsókn fékk 32% atkvæða og þrjá fulltrúa kjörna og Hjálmar varð fyrsti bæjarfulltrúi. Á yfirstandandi kjörtímabili hefur hann gegnt embætti forseta sveitarstjórnar í meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Alls hefur Hjálmar setið í sveitarstjórn í 13 ár og auk þess þrjú ár sem fyrsti varamaður. Þá hefur hann starfað samfellt í nefndum og ráðum sveitarfélagsins í 16 ár og gegnt formennsku í ýmsum fastanefndum á þeim tíma.
Samhliða störfum sínum í sveitarstjórn hefur Hjálmar verið virkur í starfi Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Hann var í 11. sæti í alþingiskosningunum árið 2009, í 5. sæti árið 2013 og í 4. sæti árið 2017. Hann hefur verið varaþingmaður Norðausturkjördæmis og tekið sæti á Alþingi níu sinnum á árunum 2013 til 2021.
Ítarlega verður rætt við Hjálmar Boga í Sunnudagsviðtali Húasvík.com á morgun.

