Leikskólabörn í Aðaldal efla hreyfiþroska með gjöf frá kvenfélaginu

Leikskólinn Barnaborg í Aðaldal fékk á dögunum veglega gjöf frá Kvenfélagi Aðaldæla, húsgögn sem efla grófhreyfiþroska barna.

„Í Gulustofu í Barnaborg eru komin upp húsgögn sem efla grófhreyfiþroska barna. Brautin þótti strax mjög spennandi. Ætlunin er að þessi húsgögn verði hluti af námsumhverfinu í stofunni á hverjum degi og hvetji börnin til fjölbreyttrar hreyfingar,“ segir á vef Þingeyjarskóla.

„Starfsfólk lýsir þakklæti til Kvenfélagsins og Foreldrafélags Barnaborgar fyrir að hafa átt frumkvæði að því að leita til Kvenfélagsins sem fúslega styrkti skólann um veglega upphæð, 150.000 krónur, til kaupanna. Áður hefur Kvenfélagið styrkt skólann og gaf Barnaborg t.d. veglega innflutningsgjöf haustið 2019, þegar leikskólinn flutti í nýtt húsnæði,“ segir jafnframt á vef skólans.