Lilja Dögg Alfreðsdóttir nýr formaður Framsóknarflokksins

Talsverður hópur Framsóknarfólks úr Norðurþingi er um helgina statt á flokksþingi Framsóknarflokksins í Reykjavík, en rétt í þessu voru tilkynnt úrslit úr formannskjöri. Lilja Dögg Alfreðsdóttir var kjörinn nýr formaður flokksins með 58% atkvæða en Ingibjörg Isaksen þingmaður úr Norðausturkjördæmi fékk 42% atkvæða. Lilja hóf sigurræðu sína á að þakka fyrir traustið frá flokksmönnum og bað um að klappað yrði fyrir Ingibjörgu Isaksen.

„Það fyrsta sem við erum að fara að gera er að snúa vörn í sókn á sveitarstjórnarstiginu,“ sagði Lilja í ræðu sinni.