Þjófar náðust á mynd að stela úr dósasöfnun Björgunarsveitarinnar Garðars

Stjórn björgunarsveitarinnar Garðars hefur kært til lögreglu mál sem varðar þjófnað úr söfnunargámum sveitarinnar, eftir að einstaklingar sáust taka dósapoka úr gámum hennar. Ábending um grunsamlega háttsemi við gámana barst nýverið til stjórnar Garðars og fékkst ábendingin staðfesting þegar skoðaðar voru upptökur úr öryggismyndavélum í nærliggjandi verslun. Samkvæmt upplýsingum frá sveitinni er um umtalsvert magn að ræða. Hefur sveitin nú brugðið á það ráð að setja upp öryggismyndavélar við söfnunargáma, en málið er í höndum lögreglu sem hefur það til rannsóknar. Í tilkynningu frá sveitinni kemur fram að henni þyki afar miður að slíkt skuli eiga sér stað.

„Dósasöfnun er helsta fjáröflun björgunarsveitarinnar Garðars og skiptir sköpum fyrir starfsemi þess. Við treystum á velvilja og stuðning samfélagsins og vonum að með þessum aðgerðum verði hægt að koma í veg fyrir frekari atvik af þessu tagi,“ segir í tilkynningu frá björgunarsveitinni.