Björgunarsveitir aðstoðuðu rútu og fylgdu sjúkrabíl í blindbyl í nótt

Björgunarsveitirnar Garðar á Húsavík og björgunarsveitin í Aðaldal voru ræstar tvisvar út í nótt vegna mikillar blindhríðar. Um hálfeittleytið var kallað eftir aðstoð við rútu með 34 farþega á leið frá Akureyri til Húsavíkur, þegar ökumaður treysti sér ekki til að halda áfram akstri vegna veðurs.

Verkefnið tók um eina og hálfa klukkustund og gekk vel að sögn Guðbergs Rafns Ægissonar úr björgunarsveitinni á Húsavík. Skömmu eftir að sveitirnar sneru til baka barst annað útkall um þrjúleytið, þar sem óskað var eftir fylgd fyrir sjúkrabíl til Akureyrar. Það verkefni gekk einnig vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður í veðrinu.

Ljósmynd úr safni / Björgunarsveitin Garðar