Laki og tengd félög áttu hagstæðasta tilboðið í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík í útboði á vegum Framkvæmdasýslu Ríkiseigna. Hjúkrunarheimilið verður rúmlega 4.000 fermetrar að stærð og mun hýsa 60 ný hjúkrunarrými. Hönnun heimilisins er í höndum HJARK arkitekta undir stjórn Huldu Jónsdóttur. Við hönnun byggingarinnar var lögð áhersla á að búa til skjólrík útisvæði, tryggja heimilislegt umhverfi, góða vinnuaðstöðu starfsfólks og aðstöðu sem styður við vellíðan íbúa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Laka.
> Sjá: Fréttatilkynningu frá Laka

