Víkurraf færði Slökkviliði Norðurþings vatnsdælu að gjöf

Slökkvilið Norðurþings á Húsavík fékk í vikunni höfðinglega gjöf þegar Áki Hauksson afhenti liðinu forláta vatnsdælu fyrir hönd Víkurrafs.

Slökkviliðið hefur undanfarna mánuði unnið að því að efla búnað sinn til varnar gróðureldum í kjölfar brunans á gamlársdag, og kemur dælan þar að góðum notum. Dælan er létt og meðfærileg og getur einn maður borið hana, auk þess sem hana má nýta bæði við færanlega vatnstanka eða til að dæla vatni úr lækjum og tjörnum.