Nemendur í 7. bekk Borgarhólsskóla settu í vikunni upp einstaklega vandaða uppfærslu á Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner, undir leikstjórn Arnþórs Þórsteinssonar. Hér var um metnaðarfulla uppsetningu að ræða, og greinilegt að mikil vinna hafði farið í æfingar og hönnun allrar umgjörðar.
Söngatriðin stóðu sérstaklega upp úr; þau voru skýr, kraftmikil og vel æfð og skiluðu sér vel um allan sal, allt aftur á aftasta bekk. Sama má segja um flutning verksins í heild.
Leikmyndin var afar vel heppnuð, hlý og falleg eins og Hálsaskógur og nýtti vel aðstöðuna í sal Borgarhólsskóla. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá uppfærslunni.












