Ríkiseignir hafa tekið tilboði Pekron, sem lagt var fram fyrir hönd Rafkletts, í byggingu hjúkrunarheimilisins á Húsavík. Með því er kominn á bindandi samningur á milli aðila en tilboðið var metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Biðtíma er lokið, engin kæra barst og er nú komið á samningssamband við Pekron. Nú hefst hönnunarfasi verkefnisins í samtali við leigusalann FSRE og rekstraraðila sem er HSN. Þetta kemur fram á vef Norðurþings í dag.
„Það er fagnaðarefni að verkefnið sé komið á þann stað og að fyrir liggi bindandi samningur um uppbyggingu hjúkrunarheimilisins. Við fáum forsvarsmenn Pekron í heimsókn til Húsavíkur núna fyrir helgina og höldum kynningarfund með sveitarstjórnarfólki á svæðinu, fulltrúum frá HSN og Dvalarheimili aldraðra sf. Þeir ætla að fara yfir byggingargerðina, væntanlega undirverktaka, tímalínu uppbyggingarinnar o.fl. Við getum upplýst meira um næstu skref eftir þann fund“ segir Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.

