Tvær milljónir úr Húsafriðunarsjóði til endurbóta á Raufarhafnarkirkju

Húsafriðunarsjóður hefur úthlutað tveimur milljónum króna til endurbóta á Raufarhafnarkirkju. Styrkurinn er hluti af úthlutun ársins 2026, þar sem alls voru veittir styrkir til 218 verkefna víðs vegar um landið. Verður styrkurinn nýttur til að hefja endurbætur á gluggum kirkjunnar.

„Það er afar ánægjulegt að fá þennan styrk úr Húsafriðunarsjóði til endurbóta á gluggum Raufarhafnarkirkju. Slíkur stuðningur skiptir miklu máli fyrir varðveislu kirkjunnar og hjálpar okkur að halda áfram mikilvægu viðhaldi. Verkefnið er umfangsmikið og kostnaðarsamt, en við vinnum að því í áföngum eftir því sem ráð og fjármunir leyfa,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, samfélagsfulltrúi Norðurþings á Raufarhöfn, sem jafnframt situr í vinnuhópi heimamanna sem unnið hefur að endurbótunum.

Raufarhafnarkirkja var byggð árið 1928 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar og verður því 100 ára árið 2028. Undanfarin ár hefur verið unnið að ýmsum endurbótum á kirkjunni í tilefni afmælisins.

Samkvæmt upplýsingum frá Minjastofnun Íslands bárust alls 271 umsókn um styrki úr Húsafriðunarsjóði vegna verkefna árið 2026, að heildarupphæð rúmlega 1,2 milljarðar króna. Styrkir voru veittir til verkefna fyrir samtals 363,5 milljónir króna og hefst útborgun þeirra 1. maí næstkomandi.

Nanna Steina Höskuldsdóttir, atvinnu- og samfélagsfulltrúi Norðurþings á Raufarhöfn.