Tvær sýningar opnuðu í Safnahúsinu á Húsavík í gær. Annars vegar er um að ræða myndlistarsýningu barna úr leikskólanum Grænuvöllum. Börnin heimsækja safnið árlega, skoða verk úr safneign Myndlistarsafns Þingeyinga og nýta þau sem innblástur í eigin sköpun. Afrakstur síðustu heimsókna má nú sjá á jarðhæð Safnahússins þar sem litagleði, hugmyndaauðgi og leikgleði barnanna fá að njóta sín.
Hins vegar opnaði sýningin Tryggðabönd, samstarfsverkefni listakonunnar Yst, barna á Grænuvöllum og mæðra þeirra. Sýningin byggir á tengslum, samveru og sköpun og endurspeglar hvernig list getur orðið sameiginlegur vettvangur fjölskyldna og samfélags.
Þrjár opnanir á tveimur dögum
Þá opnaði sýningin Margslunginn einfaldleiki á fimmtudag og mun hún standa fram í miðjan maí, en þar gefur að líta verk eftir Tryggva Ólafsson listmálara og Thor Vilhjálmsson rithöfund og portrettlistamann.
Safnahúsið á Húasvík er opið þriðjudaga til föstudaga frá kl. 13 til 16 og laugardaga frá kl. 11 til 16, en sýningar Yst og barnanna er jafnframt hægt að skoða á opnunartíma bókasafnsins.
Ljósmynd: Dagný Theódórsdóttir

