Myndlistarmaðurinn Frímann Sveinsson opnar í dag myndlistarsýningu í Bjarnahúsi á Húsavík. Sýningin verður opin um helgina, í dag laugardaginn 18. apríl og á morgun sunnudaginn 19. apríl, frá klukkan 13:00 til 18:00.
Á laugardeginum verður einnig boðið upp á tónlistarflutning þegar Frímann og Unnur Hafliða flytja nokkur lög klukkan 15:00, gestum til ánægju og yndisauka. Sýningin er opin öllum og eru gestir hjartanlega velkomnir að líta við og njóta verka listamannsins í notalegu umhverfi Bjarnahúss.




