Borgarhólsskóli fékk rúmar þrjár milljónir úr Sprotasjóði í verkefnið Lítil skref á leið til læsis

Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað rúmum 64 milljónum króna til 20 skólaþróunarverkefna fyrir komandi skólaár. Meðal verkefna sem hlutu styrk er verkefnið Lítil skref á leið til læsis, sem fékk 3,2 milljónir króna til áframhaldandi þróunar.

Verkefnið var nýverið verðlaunað á Íslensku menntaverðlaununum fyrir framúrskarandi þróunarverkefni á sviði málörvunar og læsis. Þar var sérstaklega horft til þess hvernig verkefnið stuðlar að auknu samstarfi milli skólastiga og eflir þátttöku foreldra í námi barna sinna.

> Sjá einnig: Lítil skref til læsis hlýtur Íslensku menntaverðlaunin

Lítil skref á leið til læsis er samstarfsverkefni Borgarhólsskóli, leikskólans Grænuvalla, Miðstöðvar skólaþróunar hjá Háskólanum á Akureyri og sjúkraþjálfarans Natöschu Damen. Verkefnið leggur áherslu á samráð kennara milli skólastiga, markvissa foreldrafræðslu og þverfaglegt samstarf.

Afurð verkefnisins verður leiðarvísir fyrir kennara sem nýtist sem rammi eða innblástur fyrir sambærileg verkefni. Þar verða settar fram hugmyndir að því hvernig efla megi læsi og málörvun með virkri þátttöku barna, foreldra og kennara.

Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skólastjóri Borgarhólsskóla talar um verkefnið á Bessastöðum í nóvember í fyrra.

„Við erum ákaflega stolt af þessu verkefni og veitingunni fylgir bæði viðurkenning og hvatning til framtíðar,“ sagði Þórgunnur Reykjalín skólastjóri þegar verkefnið hlaut menntaverðlaunin. Hún lagði jafnframt áherslu á mikilvægi hugmyndauðgi kennara og þess að skapa aðstæður sem vekja áhuga nemenda á læsi og námi.

Sprotasjóður hefur það hlutverk að styðja við þróun og nýsköpun í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrár, en umsýsla sjóðsins er í höndum Rannís.

Ljósmynd: Rafnar Orri Gunnarsson fyrir Húsavík.com