Það er mikilvægt að umræðan um þjónustu við eldri borgara byggi á staðreyndum. Mælingar sýna að 72% íbúa eru ánægð með þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu Norðurþingi á meðan aðeins 9% eru óánægð. Niðurstöðurnar sýna einnig stöðuga og góða þróun yfir tíma og síðastliðinn áratug hefur þjónustan í okkar sveitarfélagi mælst yfir landsmeðaltali. Ár eftir ár. Og aukist síðastliðin ár.
Það sem skiptir máli er ekki bara að hafa skoðun heldur að umræða byggi á mælanlegum staðreyndum og samhengi. Það eru alltaf tækifæri til bætingar en umræðan þarf að endurspegla raunverulega stöðu. Án slíks jafnvægis er hætta á að umræðan verði skökk, popúlísk og leiði ekki til raunverulegra umbóta.
Lífsgæði
Á undanförnum árum hefur stuðningur og þjónusta við eldri borgara verið aukinn. Allt frá hreyfiverkefni til framkvæmda við Hvamm á Húsavík. Auk þess verið þétt og gott samtal við félög eldri borgara þrátt fyrir að sitt sýnist hverjum og niðurstaðan ekki alltaf eins og öll vilja hafa hana. Nýlega var auglýst eftir starfsmanni til að sinna og eiga samtal við félagsstarf eldri borgara bæði í Öxarfirði og á Raufarhöfn. Á Húsavík er rekið uppbyggilegt starf eldri borgara. Með starfsfólki næst stöðugleiki í þjónustunni. Um leið þarf að virkja kraftinn í þessum mikilvæga þjóðfélagshóp.

Hvammur og hjúkrunarheimili
Við erum í því ferli að greina framkvæmd og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga á hinni ýmsu þjónustu við þennan þjóðfélagshóp eins og dagþjálfun og dagvist, heimsendingu á mat, akstursþjónustu og fleira. Uppbygging hjúkrunarheimilis á Húsavík mun breyta mjög miklu og býður upp á ákaflega spennandi möguleika varðandi búsetu og lífsgæði eldri borgara á svæðinu í tengslum við nýtingu á Hvammi. Það verkefni er þegar hafið varðandi möguleika, hönnun og kostnaðarmat framkvæmda.
Það er mikilvægt að hafa heildarmyndina í huga; heildstæða þjónustukeðju með áherslu á félagslega virkni og lífsgæði. Auk þess á þróun og fagmennsku í þjónustunni. Staðreyndir segja okkur að við stöndum vel, yfir landsmeðaltali og alltaf svigrúm til að bæta þjónustuna gefið að fólk hafi leiðir og lausnir til þess.
Hjálmar Bogi Hafliðason
Forseti sveitarstjórnar Norðurþings

