Sigrún Marta skrifar undir við Georgia State University í Atlanta: „Tek keppnisskapið með til Bandaríkjanna“

Húsvíkingurinn Sigrún Marta Jónsdóttir hefur á skömmum tíma skipað sér í fremstu röð blakleikmanna landsins. Eftir frábær ár með Blakdeild Völsungs hefur Sigrún nú í vetur verið lykilmaður í sterku liði HK, auk þess að spila með landsliðinu.

Sigrún Marta stendur nú aftur á tímamótum á ferli sínum, en í vikunni skrifaði hún undir samning við bandaríska háskólaliðið Georgia State University í Atlanta þar sem hún mun spila í efstu deild NCAA.

Í sunnudagsviðtali Húsavík.com ræðir Örlygur Hnefill við við Sigrúnu um uppvöxtinn á Húsavík, keppnisskapið sem kviknaði snemma, tímabilið með HK, og hvernig það var að mæta sínum gömlu vinkonum sínum úr Völsungi á vellinum í vetur.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilara Húsavík.com hér að neðan:

Ljósmyndir: Örlygur Hnefill Örlygsson