Eyfi fagnar 35 ára afmæli Nínu með tónleikum á Húsavík

Nú í maí verða 35 ár liðin frá því að Stebbi og Eyfi stigu á svið í Eurovision keppninni í Róm og fluttu hið ógleymanlega lag Drauminn um Nínu. Eyfi fagnaði sjálfur á dögunum 65 ára afmæli sínu og því ætlar hann að gera sér ferð til Húsavíkur föstudaginn 1. maí  til að halda tónleika í Eurovision safninu, en þar mun hann flytja Nínu og önnur lög sín tengd Eurovision, auk þess að flytja helstu perlurnar af löngum tónlistarferli.

Tónleikarnir verða einnig teknir upp fyrir sjónvarp og því ekki ólíklegt að landsmenn allir geti notið þeirra heima í stofu síðar.

„Ég trúi því nú varla að það séu 35 ár síðan við Stebbi fluttum Nínu í Róm, þetta var svo skemmtileg vika, með svo skemmtilegu fólki að manni finnst þetta hafa verið bara í fyrra. Svo finnst mér frábær þessi hugmynd með Eurovisionsafnið á Húsavík, þetta er líka í annað sinn sem ég kem og held tónleika þar og vonandi ekki í það síðasta,“ sagði Eyfi í samtali við Húsavík.com í morgun.

Forsala miða er hefst í Eurovision safninu á Húsavík í dag klukkan 14:00 og einnig er hægt að panta miða í síma 848-7600. Miðaverð er 5.900 krónur.

Skoða í Viðburðadagatali Markþings:
Eyjólfur “Eyfi” Kristjánsson
TÓNLEIKAR EUROVISIONSAFNINU FÖSTUDAGINN 1. MAÍ KL. 21:00