Í dag er kosið um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, Húsavík.com fylgist með franvundu mála í dag og verður með kosningavakt á vefnum fram eftir degi og í kvöld.
09:03 – Kjörstaðir opnaðir í Norðurþingi Kjörstaður á Húsavík hefur nú verið opnaður, en hann opnaði rétt í þessu klukkan 9. Í Borgarhólsskóla á Húsavík er kosið frá klukkan 9 til 22, en kjörstaðir í Skúlagarði, Skólahúsinu á Kópaskeri og Grunnskólanum á Raufarhöfn eru opnir frá klukkan 10 til 18. Kjósendur svara spurningunni: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ með því að merkja við já eða nei.
13:15 – Kjörsókn í Norðurþingi góð Kjörsókn hefur verið með besta móti frá því kjörstaðir opnuðu í morgun, og kjörsókn á hádegi var umtalsvert meiri en í sveitarstjórnarkosningum í vor.

