Heimildamynd um kirkjubruna og samfélag í Grímsey sýnd í nýjum kvikmyndasal á Húsavík

Heimildarmyndin Eyríki eftir írsk-rússneska leikstjórann Nikolai Galitzine verður sýnd í Fjalakettinum, nýjum kvikmyndasal Eurovision-safnsins á Húsavík, á laugardag klukkan 17. Að sýningu lokinni munu Galitzine og Dögg Mósesdóttir, framleiðandi myndarinnar, sitja fyrir svörum gesta.

Myndin fjallar um brunann í Miðgarðakirkju og baráttu Grímseyinga við að endurreisa kirkjuna. Um leið dregur hún upp mynd af fámennu og afskekktu samfélagi sem glímir við óvissu um framtíð sína.

„Endurreisn Miðgarðakirkju er svo táknræn fyrir þrautseigju og dugnað Grímseyinga, sem og barátta þeirra fyrir þessu litla samfélagi,“ segir Dögg í samtali við Fjalaköttinn. Hún segist tengja sterkt við sögu eyjarskeggja enda sé hún sjálf frá sjávarplássinu Grundarfirði.

Nikolai vann upphaflega við endurreisn kirkjunnar og varð á þeim tíma náinn Grímseyingum. Að sögn Daggar nálgaðist hann myndefnið eins og leikna kvikmynd og sýnir Grímsey frá sjónarhorni sem hún hafði ekki áður séð í íslenskri heimildarmynd.

Eyríki var valin í verk-í-vinnslu dagskrá norræna verkefnisins 5Nordic í tengslum við kvikmyndahátíðina í Cannes í vor. Myndin keppti einnig á Skjaldborg og hefur nú verið tilnefnd sem besta norræna heimildarmyndin á Nordisk Panorama, sem fram fer í Svíþjóð í september.

Fjalakötturinn birtir á morgun ítarlegra viðtal við Dögg Mósesdóttur um tilurð myndarinnar, kynni kvikmyndagerðarfólksins af Grímseyingum og þá óvissu sem ríkir um framtíð byggðarinnar.

Fjalakötturinn, nýr kvikmyndasalur í Eurovision safninu rúmar 40 áhorfendur í sæti.