Haraldur V Noregskonungur er látinn, 89 ára að aldri. Hann lést á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló klukkan 6:35 í morgun, föstudaginn 28. ágúst, að því er fram kemur í tilkynningu norsku konungsfjölskyldunnar. NRK greinir frá andláti konungsins rétt í þessu.
Haraldur fæddist 21. febrúar árið 1937 og tók við konungdómi árið 1991 eftir andlát föður síns, Ólafs V. Hann var kvæntur Sonju drottningu og eignuðust þau tvö börn, Märthu Louise prinsessu og Hákon krónprins.
Haraldur heimsótti Ísland sem ríkisarfi Noregs í ágúst árið 1967. Í ferðinni kom hann meðal annars til Norðurlands, þar sem hann heimsótti Akureyri og Mývatnssveit og skoðaði Goðafoss á leið sinni austur.
Hákon krónprins tekur nú við konungdómi í Noregi.

