Starfsemi fiskþurrkunar Samherja á Laugum í Reykjadal verður stöðvuð eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi starfsleyfi fyrirtækisins. Tuttugu starfsmenn voru upplýstir um stöðuna í morgun. Unnið verður úr því hráefni sem þegar er í vinnslunni á næstu dögum en að því loknu verður starfsemin stöðvuð. Starfsfólkinu verður boðin vinna hjá Samherja á Akureyri meðan óvissa ríkir um framhaldið.
Úrskurðarnefndin telur að heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hafi ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi fimm vatnshlota í nágrenni verksmiðjunnar þegar starfsleyfið var gefið út í júní. Einnig voru gerðar athugasemdir við eftirlit með lykt og hávaðamælingar. Samherji leggur áherslu á að úrskurðurinn snúi að annmörkum á málsmeðferð heilbrigðisnefndar en ekki brotum fyrirtækisins gegn starfsleyfinu. Öll skilyrði þess hafi verið uppfyllt og mælingar í Reykjadalsá í ágúst sýnt að ástand árinnar væri mjög gott.
„Það á eftir að skýrast hvaða áhrif þetta hefur. Samherji er að vinna að því að starfsemin haldi áfram,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar, í samtali við Húsavík.com. Hún segir fiskþurrkunina hafa verið mikilvægan þátt í atvinnulífi sveitarfélagsins um áratugaskeið. Þar sé elsta starfandi fiskþurrkun landsins og um leið einn stærsti vinnustaðurinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft.
Katrín bendir á að áhrif starfseminnar nái langt út fyrir vinnustaðinn enda sé um lífsviðurværi fjölskyldna í sveitarfélaginu að ræða. Fyrirtækið sé jafnframt stærsti kaupandi heits vatns hjá Hitaveitu Reykdæla. „Fyrir samfélagið í Þingeyjarsveit er þetta ekki aðeins spurning um starfsleyfi eða stjórnsýslulega meðferð máls,“ segir Katrín og leggur áherslu á að samfélagið standi saman á meðan leitað sé lausna.
Mjög íþyngjandi úrskurður
Á vef Samherja er fjallað um úrskurðinn í dag. Þar segir að rekstur fiskþurrkunar að Laugum hafi að öllu leyti verið í samræmi við útgefið starfsleyfi og þær kröfur sem til starfseminnar eru gerðar.
„Áhrifamat vegna umsóknar Samherja um starfsleyfið var á sínum tíma unnið af verkfræðistofu í samræmi við leiðbeiningar Umhverfis- og orkustofnunar og var matið samþykkt af heilbrigðisnefnd.
Úrskurðurinn sem nú liggur fyrir snýr því ekki að vanköntum á starfseminni sem slíkri eða brotum gegn útgefnu starfsleyfi, heldur um mismunandi túlkun á kröfum til upplýsinga í gagnagrunnum ríkisins, milli opinberra stofnana. Úrskurðurinn hefur ekkert með starfsemina að gera eða hvort starfsemin hafi áhrif á umhverfi sitt.
Sú ákvörðun úrskurðarnefndar að fella starfsleyfið úr gildi fyrirvaralaust er mjög íþyngjandi fyrir fyrirtækið og starfsfólk þess. Um 20 manns starfa í fiskþurrkuninni að Laugum og er um að ræða stærsta vinnustaðinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft.
Í úrskurðinum var ekki tekið tillit til þeirrar umhverfisvöktunar sem starfsleyfið setur skilyrði um. Samkvæmt vöktunaráætluninni var gerð mæling á Reykjadalsá nú í ágúst, en áin tilheyrir því vatnshloti sem næst stendur verksmiðjunni. Þær mælingar sýna að ástandið á ánni er mjög gott og ekki vart mengunar frá verksmiðjunni. Teljast verður nær ómögulegt að áhrifin af völdum verksmiðjunnar séu meiri þegar neðar dregur í vatnakerfinu,“ segir á vef Samherja.

