Fjögur prósent hækkun á ferðum um Vaðlaheiðargöng tekur gildi í mars
Stjórn Vaðlaheiðarganga samþykkti í vikunni breytingar á verðskrá ganganna sem taka gildi frá 2. mars 2026. Verð á stökum ferðum, sem og á 10 og 50 skipta kortum, hækka um 4 prósent. Verð á mánaðar- og árskortum helst hins vegar óbreytt. Síðast var verðskrá ganganna hækkuð 2. janúar 2025. …
