Þingeyingurinn Tryggvi Snær í þriðja sæti í kjöri Íþróttamanns ársins 2025

Þingeyingurinn Tryggvi Snær Hlinason frá Svartárkoti í Bárðardal hafnaði í þriðja sæti í kjöri Íþróttamanns ársins 2025. Tryggvi hlaut  211 stig í kjörinu sem var tilkynnt við hátíðlega athöfn Samtaka íþróttafréttamanna og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Hörpu í kvöld.

Tryggvi átti afar gott ár en hann var besti leikmaður íslenska landsliðsins í körfuknattleik bæði í undankeppni og úrslitakeppni Evrópumótsins. Þá varð hann Evrópubikarmeistari með spænska liðinu Bilbao og var síðar á árinu gerður fyrirliði liðsins.

Í efstu sætum kjörsins urðu Eygló Fanndal Sturludóttir, sem hlaut nafnbótina Íþróttamaður ársins 2025, og Gísli Þorgeir Kristjánsson í öðru sæti. Frábær árangur Tryggva Snæs undirstrikar enn á ný sterka stöðu Þingeyinga í íslensku afreksíþróttalífi.

Mynd: FIBA