21 uppvísir að vændiskaupum á Akureyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði nýlega afskipti af vændisstarfsemi á Akureyri þar sem 21 vændiskaupandi reyndist hafa farið til sömu konunnar á nokkrum dögum. Á síðasta ári voru alls stofnuð 22 mál hjá embættinu sem tengdust vændisstarfsemi, þar af 16 vegna kaupa á vændi.

Af þessum málum hefur hluta verið lokið með sektargerðum, þar sem refsingu var m.a. beitt í formi 200.000 króna sektar, á meðan önnur eru enn til rannsóknar eða óafgreidd á ákærusviði. Þá voru einnig stofnuð mál vegna auglýsinga á vændi og eitt mál vegna gruns um milligöngu og hagnýtingu af vændi annarra.

Morgunblaðið greinir frá þessu og segir Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri í samtali við blaðið að lögregla leggji áherslu á að ábyrgðin hvíli á kaupanda, en að seljendur vændis séu ávallt skoðaðir sem mögulegir þolendur mansals eða kynferðisbrota.

Ljósmynd: Kevin Turcios/Unsplash