Auglýsing Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík fyrir öskudaginn vakti athygli margra í gær en þar eru öll börn og Stebbi í Steindal boðin velkomin í hádegismat á öskudaginn. Lofað er pylsum, nammi og Svala fyrir góðan söng. „Stebbi í Steindal hefur mætt á hverju ári í fullum skrúða, sungið og fengið sína pylsu. Við ákváðum í ár að taka það sérstaklega fram í auglýsingunni svo það færi nú ekkert á milli mála. Þetta er auðvitað komið af borði Simma, það er oft mikill húmor hér á skrifstofunni eins og þið getið ímyndað ykkur,“ segir Brynja Rún Benediktsdóttir, mannauðsfulltrúi hjá Kjarnafæði Norðlenska, glettin í samtali við Húsavík.com.
Einnig vakti athygli blaðamanns að í auglýsingunni er sagt að boðið verði upp á Svala. Eins og kunnugt er hætti framleiðsla á þeim ágæta drykk í lok árs 2022. „Því miður er það ekki gamli góði Svali, en við viljum halda í þetta góða nafn. Það er alltaf svalandi að fá sér drykk með pylsunni og það verður einhver svalandi drykkur í boði,“ segir Brynja Rún. Eftir því sem næst verður komist er síðasti Svali landsins í frysti á ritstjórnarskrifstofu Húsavík.com

