Í dag er bolludagurinn og af því tilefni birti Héraðsskjalasafn Þingeyinga nokkrar vel valdar myndir úr ljósmyndasafninu frá bolludegi á kaffistofunni á bæjarskrifstofunni á Húasvík árið 1989. Þó liðnir séu nærri fjórir áratugir má sjá kunnugleg andlit sem enn starfa í stjórnsýsluhúsi sveitarfélagsins, meðal annars þau Kidda Óskars og Ásu Gísla, að gæða sér á gómsætum bollum úr kössum sem merktir eru Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, en væntanlega hefur samlagið útvegað bakaríinu handan götunnar stærri kassa á þessum annasama degi.
Á vef safnsins segir að bolludagur sé mánudagurinn í föstuinngangi, 7 vikum fyrir páska. Flengingar og bolluát berst líklega til Íslands fyrir dönsk eða norsk áhrif á síðari hluta 19. aldar, líklega að frumkvæði þarlendra bakara sem settust hér að. Heitið Bolludagur er ekki þekkt fyrr en eftir aldamót og mun orðið til hérlendis. Upphaflega bárust siðirnir að slá köttinn úr tunnunni og að marsera í grímubúningum frá Danmörku fyrir 1870 en lagðist víðast hvar af eftir aldamótin. Þessir siðir héldust samt áfram á Akureyri en 1915 færðust þeir yfir á öskudaginn og hafa síðan smám saman breiðst þaðan út aftur sem öskudagssiðir. Heitið bolludagur sést fyrst á prenti 1910 en annars var dagurinn oft kallaður flengingardagur.
Hvað sem því líður þá voru bollur í boði hjá starfsfólki Húsavíkurkaupstaðar 1989.




