Krambúðin verður SPAR

Krambúðin á Húsavík mun brátt fá nýtt nafn, en Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR International um notkun vörumerkisins hér á landi. Samkvæmt samningnum er stefnt að því að fyrir lok árs 2027 muni allar verslanir sem nú starfa undir merkjum Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og 10–11 bera alþjóðlega vörumerkið SPAR.

Krambúðin á Húsavík var aðeins önnur Krambúðin á eftir upphaflegu versluninni sem er á Skólavörðustíg í Reykjavík. Krambúðin tók til starfa á Húsavík árið 2016 en áður var rekin þar verslunin Kaskó og þaráður verslunin KÞ Miðbær.

Að lokinni innleiðingu mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Nettó og SPAR á Húsavík, en félagið rekur jafnframt verslanir Prís. SPAR var stofnað í Hollandi árið 1932 og rekur í dag yfir 13.800 verslanir í 50 löndum víðs vegar um heiminn, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.