Óðinn Svan Óðinsson, sem fyrr í dag tilkynnti að hann hyggðist hætta störfum sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, verður í 1. sæti L-listans í komandi bæjarstjórnarkosningum á Akureyri. Fréttavefurinn Akureyri.net greindi fyrst fyrst frá málinu.
Óðinn Svan, sem er fjölmiðlafræðingur að mennt, hefur starfað hjá RÚV undanfarin sjö ár. Hann tilkynnti í dag um starfslok sín á Facebook og skrifaði meðal annars: „Næsti kafli verður opnaður fljótlega og hann verður pottþétt álíka skemmtilegur og þessi.“ Nú liggur fyrir að sá kafli felst í framboði fyrir L-listann.
Í samtali við Akureyri.net sagðist Óðinn vera „Akureyringur í húð og hár“ og þekkja af eigin raun hversu gott sé að búa í bænum og ala þar upp börn. Hann segist vilja leggja sitt af mörkum til að tryggja áframhaldandi vöxt og þróun bæjarins og nýta þá reynslu sem hann hafi aflað sér í störfum sínum hjá RÚV á sviði samfélagsmála og stjórnsýslu. Nánar um málið á Akureyri.net
Ljósmynd af vef RÚV

