Ég lýsi yfir eindregnum mótmælum vegna ákvörðunar um að skerða opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur.
Um er að ræða grunnþjónustu við íbúa Húsavíkur. Sundlaugin er ekki munaðarvara heldur mikilvægur innviður sem styður við lýðheilsu, forvarnir og er mikilvæg félagslega. Sú ákvörðun að draga úr aðgengi að henni er að mínu mati óásættanleg og gengur gegn hagsmunum íbúa.
Samkvæt frétt á nordurthing.is frá 5. mars 2018 þá gerðist Norðurþing heilsueflandi samfélag. Hefur verið tekin ákvörðun um að hætta að vera heilsueflandi samfélag?
Er þetta tónninn sem þið viljið setja í okkar samfélag, ef aðsókn er ekki ykkur að skapi þá skal skerða opnun? Á ég sem verslunareigandi á Húsavík að taka þetta mér til fyrirmyndar? Var lagt í vinnu til að efla sundlaugina og ná í meiri tekjur eða er þetta eina lausnin ykkar að skerða opnunartíma?
Ég krefst þess að sveitarstjórn leggi fram skýran og opinberan rökstuðning fyrir þessari ákvörðun, þar á meðal hvaða kostnaðargreining og mat lá að baki. Þá krefst ég þess að málið verði tekið til formlegrar umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar og að íbúum verði gefinn kostur á upplýsingum og svörum.
Ég óska jafnframt eftir skriflegu svari innan 14 daga um hvort og hvernig standi til að endurskoða opnunartímann.
Íbúar eiga rétt á ábyrgri stjórnsýslu, gagnsæi og þjónustu sem tekur mið af raunverulegum þörfum samfélagsins.
Virðingarfyllst,
Birgitta Bjarney Svavarsdóttir

