Páll Óskar: „Hlakka til að syngja aftur í Húsavíkurkirkju“

Tónlistarmennirnir Páll Óskar og Benni Hemm Hemm halda tónleika í Húsavíkurkirkju annað kvöld þar sem þeir munu flytja plötuna Alveg í heild sinni ásamt kirkjukór Húsavíkur, auk þess að taka nokkur af sínum þekktustu lögum.

Samstarf þeirra er um margt óvænt, en það varð til þegar tónlistarmaðurinn Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi Hjálmur, leiddi þá Palla og Benna saman í þáttunum Hljómskálinn á RÚV.

Óvænt og gefandi samstarf

„Kiddi Hjálmur stundar það í þessum þáttum að para saman tónlistarmenn sem hafa annað hvort aldrei hist eða eiga lítið sem ekkert sameiginlegt. Hann biður okkur að semja lag fyrir Hljómskálaþáttinn. Hann skipar mér að fara í bílskúrinn til Benna, sem er nágranni minn, svo ég hafði enga afsökun,“ segir Palli, en hann var á ferðinni í farþegasætinu í bílnum hjá hörpuleikaranum Moniku Abendroth þegar blaðamaður Húsavík.com heyrði í honum í síma í dag.

„Þetta gekk mjög vel og áður en við vissum vorum við komnir með fjögur lög og þá þurftum við að spyrja okkur að því hvort ætti að láta þar við sitja eða gera heila plötu, og úr varð heil plata. Við nefndum þessa plötu Alveg, því hún er alveg Páll Óskar og alveg Benni Hemm Hemm.“

Páll Óskar segir samstarfið hafa verið óvænt og virkilega gefandi fyrir þá báða. „Við náðum að koma okkur báðum þægilega á óvart, við höfðum ekki þekkst fyrir þetta samstarf en eitthvað hefur Kiddi Hjálmur vitað sem við vissum ekki. Núna í október kom platan út á streymisveitum og á vinyl og lagið Eitt af blómunum var á endanum kosið lag ársins á Rás 2 og platan sömuleiðis kosin plata ársins af Morgunblaðinu og líka hjá ýmsum tónlistarnördum sem við höfum séð til á samfélagsmiðlum,“ segir Palli.

Vinna með kórum og sönghópum um allt land

Aðspurður um tónleikaferðina segir Palli: „Núna ætlum við að njóta þess að ferðast um landið og spila þessa plötu alveg í gegn, auk ýmissa eldri laga sem við erum þekktir fyrir. Platan er tekin í heild sinni en ég mun segja sögurnar á bak við lagasmíðarnar á milli laga. Við erum að virkja kóra og sönghópa til að vera með okkur á tónleikunum. Benni útsetur lögin fyrir kór og sendir þær útsetningar á hvern kórstjóra fyrir sig. Svo hittum við kórinn sama dag og þetta blessast allt á endanum, og áður en við vitum af eru tónleikarnir hafnir. Þetta er svo falleg tónlist og ég fæ mikið út úr því að flytja þessi lög. Þetta er tónlist sem fer með þig á sérstakan stað. Og svo tek ég auðvitað Gordjöss í lokun.“

Páll Óskar heimsótti fjölda heimila á Húsavík og hélt stofutónleika á Covid-tímanum. Hér er hann með Ylvu Breiðfjörð Örlygsdóttur á tónleikum í Höfðabrekku 29.

Margar góðar minningar frá Húsavík

Palli segist eiga margar góðar minningar frá Húsavík. „Ég hef einu sinni áður haldið tónleika í Húsavíkurkirkju sem var stórkostleg upplifun,“ segir Palli og snýr sér að Moniku til að spyrja um ártalið, sem hana minnir að hafi verið 2004. „Löngu kominn tími til að syngja aftur í þessari fallegu kirkju. Svo kom ég til Húsavíkur í tengslum við listhátíð á Covid-tímanum og söng á fjölda heimila á Húsavík sem vissu ekki að ég væri að koma, það var mjög náin og gefandi lífsreynsla,“ segir Palli.

Mörgum er einnig ógleymanlegt þegar Páll Óskar tróð upp á Mærudögum 2023. Enn eru lausir miðar á www.tix.is ef fólk vill upplifa þessa stórkostlegu plötu með listamönnunum og kórnum okkar.