Páll Óskar óvæntur gestur á söngsal Borgarhólsskóla

Söngvarinn Páll Óskar var óvæntur gestur á söngsal í Borgarhólsskóla í morgun. Löng hefð er fyrir því að nemendur skólans komi saman á sal til að syngja og oft koma góðir gestir í heimsókn. Páll Óskar er á Húsavík vegna tónleika hans og Benna Hemm Hemm í Húsavíkurkirkju í kvöld og ákvað Palli að gleðja nemendur skólans með þessum óvænta hætti, en það var foreldrafélag Borgarhólsskóla sem bauð nemendum og stóð að framkvæmdinni ásamt skólanum.

Það var eftirvænting í loftinu og þótt nemendur vissu ekki hvað var í vændum, sáu þau að eitthvað stóð til þegar þau komu í salinn, því búið var að skreyta hann og margir kennarar voru í litríkum og skrautlegum fatnaði.

Söngsalurinn hófst á því að nemendur og starfsfólk sungu nokkur lög meðan Palli faldi sig inni á gangi við skólabókasafnið. Þegar komið var að fimmta laginu reyndist það vera Palla-slagarinn Gordjöss og þá hljóp goðsögnin inn í salinn og ætlaði allt um koll að keyra í fagnaðarlátum nemenda. Palli flutti í kjölfarið fimm lög og nemendur og kennarar tóku hressilega undir.

„Ég sá að hann var að koma með tónleika og fannst þetta flott hugmynd að fá hann líka í skólann. Dóttir mín er mikill aðdáandi og það er auðvitað búið að vera erfitt að halda þessu leyndu, en við vildum að þetta kæmi krökkunum í skólanum á óvart,“ segir Daníel Annisius, gjaldkeri foreldrafélags Borgarhólsskóla.

Tónleikar Páls Óskars og Benna Hemm Hemm ásamt kirkjukór Húsavíkur fara svo fram í kvöld. Hægt er að kaupa miða á tix.is og við innganginn, og hefjast tónleikarnir klukkan 20.00.