Rauði Krossinn með búningamarkað á Bókasafninu

Rauði Krossinn stendur fyrir markaði með öskudagsbúninga á Bókasafninu á Húsavík í dag. Markaðurinn er opinn til klukkan tvö en svo verður hægt að skoða búninga áfram í verslun Rauða Krossins á Vallholtsvegi næstu vikuna. Það kennir ýmissa grasa og þau sem eiga eftir að ná sér í flottan búning geta gert það á góðu verði hjá Rauðakrosskonu í dag.