Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt kauptilboð sveitarfélagsins í hluta af lóð kísilversins í Helguvík. Með kaupunum vill sveitarfélagið skapa grundvöll fyrir nýja og vistvæna uppbyggingu á svæðinu.
Á síðasta ári keypti byggingar- og þróunarfélagið Reykjanes Investment ehf. mannvirki og lóð kísilversins í Helguvík. Í kjölfarið bauð félagið sveitarfélaginu stóran hluta lóðarinnar til kaups. Samkvæmt upplýsingum frá bæjarráði hefur nú verið samþykkt að ganga að því tilboði.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs, segir að með þessu skapist tækifæri til metnaðarfullrar og umhverfisvænnar uppbyggingar. Hún bendir á að saga kísilversins í Helguvík sé mörgum íbúum sár, enda fór verksmiðjan í þrot og mannvirki og lóð lentu í höndum dótturfélags Arion banka um tíma.
„Sorgarsögu kísilversins í Helguvík þekkjum við vel hér í Reykjanesbæ. Þegar verksmiðjan varð gjaldþrota fór mannvirkið og lóðin í eigu dótturfélags Arion banka og var þar þar til einkaaðilar keyptu eignina á síðasta ári. Þeir hyggjast nú rífa mannvirkið og buðu sveitarfélaginu stóran hluta lóðarinnar til kaups,“ sagði Halldóra í fréttum RÚV í dag.
Með kaupum á lóðinni vill sveitarfélagið hafa áhrif á framtíðarskipulag svæðisins og tryggja að uppbygging þar taki mið af sjálfbærni og fjölbreyttu atvinnulífi. Næstu skref felast í frekari útfærslu á skipulagi og samtali við hagsmunaaðila um framtíðarnýtingu svæðisins.
Kísilver PCC á Bakka er eins og lesendur þekkja enn stopp og óvíst hvað verður þar.
Ljósmynd: Steinninn (af Wikipedia síðu um Helguvík)

