Slökkvilið Norðurþings æfði í sýndarveruleika

Slökkvilið Norðurþings fékk góða gesti í heimsókn um helgina þegar fulltrúar frá Brunamálastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins og Brunavörnum Suðurnesja stóðu fyrir þjálfun í sýndarveruleika á Húasvík. Æft var í hugbúnaði sem nefnist Flaim Trainer en með honum er hægt að setja slökkviliðsmenn í margvíslegar aðstæður þar sem líkt er eftir eld, reyk og hættum af mikilli nákvæmni.

Þátttakendur ganga inn í sviðsmyndir í sýndarheimi en með búnað sem er mjög áþekkur því sem notað er í raunverulegum útköllum. Slökkviliðsmenn voru meðal annars með kút á baki, maska, hitamyndavél og stút með slöngu sem myndar bakþrýsting þegar opnað er fyrir vatnið. Að auki voru þeir klæddir sérstökum hitavestum sem hitna í samræmi við þær aðstæður sem verið er að takast á við í æfingunni, sem eykur raunsæi og krefst viðbragða líkt og í alvöru eldsvoða.

„Við vorum mjög ánægð með þetta. Þarna er verið að æfa á mjög raunverulegan hátt en í algjöru öryggi,“ segir Rúnar Traustason hjá Slökkviliði Norðurþings. Sýndarveruleikaþjálfun sem þessi gerir kleift að æfa hættulegar aðstæður oftar og við fjölbreyttari kringumstæður en ella, án þess að stofna mönnum eða búnaði í hættu.

Húsavík.com leit við á æfingunni um helgina og má sjá það í spilaranum hér að neðan.