Leikdeild Eflingar býður heim til frumsýningar á hinu klassíska verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Þrek og tár, að Breiðumýri í kvöld, 13. febrúar. Sem fyrr er verkið samstarfsverkefni Leikdeildarinnar og Framhaldsskólans á Laugum, þar sem að verkinu koma fjölmargir nemendur í bland við reynslubolta úr röðum þessa rótgróna áhugaleikfélags.
María Pálsdóttir, leikkona og þúsundþjalasmiður leikstýrir verkinu og Pétur Ingólfsson er tónlistarstjóri. Verkið er söngleikur sem fjallar um líf, störf og ástir á sjöunda áratugnum í Vesturbæ Reykjavíkur. Þrjár kynslóðir kaupmannsfjölskyldu koma við sögu, en verkið prýða mörg þekkt sönglög frá þessum árum, eins og titillagið Þrek og tár, Í rökkurró og fleiri.
Hin ómissandi kaffihúsastemning að hætti Kvenfélags Reykdæla verður að sjálfsögðu fyrir sýningu og í leikhléi. Miðasala fer fram í gegnum s. 618-0847 og umfefling@gmail.com
Uppselt er á frumsýningu, en næstu sýningar eru:
15. febrúar kl. 16
17. febrúar kl. 20
24. febrúar kl. 20
27. febrúar kl. 20
1. mars kl. 16
6. mars kl. 20
7. mars kl. 16

